Gagnrýni eftir:
Dodgeball: A True Underdog Story0 af 0 fannst gagnrýnin hjálpleg

Ég ákvað að skella mér á óvissusýningu í laugarásbíó, Og var því ekki viss hvaða mynd ég væri að fara á. Svo byrjar þessi mynd og var ég ansi ánægður með það. Þessi mynd er satt að segja snilld frá A-Ö, Persónan sem Ben Stiller leikur svipar soldið til Derek Zoolander, en stiller lék hann einmitt í myndinni Zoolander árið 2001. En hann er einskonar líkamsæktar gúru og rekur stærstu og bestu líkamsræktarstöðina. Vince Vaugn fer vel með hlutverk sitt sem Peter La Fleur og sömuleiðis Christine Taylor. Þessi saga er nokkurs konar davíð vs. golíat, stóri maðurinn á móti þeim litla. Skemmtilegt er að sjá hversu margir gestaleikarar koma fram í myndinni og má þar á meðal nefna, Chuck Norris og David Hasselhoff.

