Ný stikla er komin út fyrir suður kóresku hryllingsmyndina The Host 2, en fyrri myndin kom út árið 2006. Í myndinni kemur fyrir stökkbreytt ófrýnilegt sæskrýmsli, sem ættað er úr geislavirkum sjó við strendur Asíu. Það klifrar upp úr sjónum og ræðst á börn.
Skoðið stikluna hér að neðan:
Eins og sést í myndbandinu eru upptökur úr vinnsluferli myndarinnar aftast.
Fyrri myndinni var leikstýrt af Joon – ho Bong en The Host 2 er leikstýrt af Park Myeong-chan. Ekki er enn vitað hvenær myndin verður frumsýnd.