Paramount Pictures hefur ráðið Christopher Landon til að leikstýra myndinni Boy Scouts Vs. Zombies, en nýjasta mynd hans, Paranormal Activity: The Marked Ones, verður frumsýnd 3. janúar nk.
Landon skrifaði handritið að og leikstýrði Paranormal Activity: The Marked Ones, eftir að hafa skrifað handrit myndanna Paranormal Activity 3 og 4, og verið meðhöfundur að Paranormal 2.
Tökur á Boy Scouts Vs. Zombies hefjast í vor.
Enginn söguþráður hefur verið birtur enn, en eins og nafnið gefur til kynna þá má gera ráð fyrir skátum að berjast við, eða vera étnir af, uppvakningum!