Skelltu þér á The Town í kvöld!

Kvikmyndir.is mælir eindregið með því að notendur skelli sér á glæpamyndina The Town, sem er forsýnd í kvöld og annað kvöld í Kringlubíói kl. 22:10. Myndin er leikstýrð af sjálfum Ben Affleck, sem seinast kom hörðustu kvikmyndaáhugamönnum á óvart með Gone Baby Gone árið 2007. Með helstu hlutverk fara Jon Hamm, Rebecca Hall, Jeremy Renner, Chris Cooper og sjálfur Affleck.

Söguþráður (tekið af Midi.is):

Í Boston eru árlega framin yfir 300 bankarán. Flestir þeirra sem hafa lifibrauð sitt af bankaránum búa í sama hverfinu, Charlestown. Einn þeirra er Doug MacRay (Ben Affleck), en hann er ekki af sama meiði og hinir þjófarnir. Doug átti möguleika á heiðarlegu lífi, tækifæri á að feta ekki í fótspor föður síns í glæpastarfsemi, en kaus heldur að fara fyrir flokki harðsvíraðra bakaræningja sem hirða allt sem á vegi þeirra verður og skilja ekki eftir nein spor. Eina fjölskylda Doug eru félagar hans í glæpagenginu, sérstaklega hinn hættulegi Jem (Jeremy Renner) sem er Doug sem bróðir. Allt breytist hinsvegar í síðasta verkefni þeirra félaga þegar þeir taka bankastarfsmanninn Claire Keesey (Rebecca Hall) sem gísl. Eftir ránið komast þeir að því að Claire býr í Charlestown og til að fullvissa sig að Claire hafi ekki þekkt til þeirra fer Doug og leitar Claire uppi. Claire hefur enga hugmynd um að kynni þeirra Doug eru ekki af tilviljun og enn síður að Doug hélt henni í gíslingu aðeins viku áður. Þau fella hugi saman og Doug hyggst segja skilið við glæpalífið og gömlu félagana en þegar lögreglan kemst á slóð þeirra þá stendur Doug frammi fyrir erfiðri ákvörðun; að svíkja félaga sína að missa konuna sem hann elskar.

Ef Kvikmyndir.is meðmælin duga ekki til að sannfæra menn um að skella sér á þessa tilvonandi Óskarsræmu þá getið þið hér séð heilt bílhlass af jákvæðum umsögnum gagnrýnenda hér fyrir neðan. Myndin er líka með 95% á RottenTomatoes. Það segir kannski eitthvað.

4.5/5
„A riveting and explosive crime thriller and one of the year’s best pictures.“ – Box Office Magazine

3.5/4
„Ben Affleck, 38, kicks it up a notch with The Town, a gripping human drama disguised as a blazing heist film that comes on like gangbusters.“ – Rolling Stone

3.5/4
„Affleck shows this is how you f_ck_n’ direct a movie.“ – OK! Magazine

A-
„A rich, dark, pulpy mess of entanglements that fulfills all the requirements of the genre, and is told with an ease and gusto that make the pulp tasty.“ – Entertainment Weekly

9/10
„Proves GONE BABY GONE was no fluke, and also that Affleck’s rebirth works IN FRONT of the camera too.“ – JoBlo.com

„The Town is part of a career turnaround so amazing that he looks like the new Clint Eastwood. Seriously.“ – Newsweek

Getraun:

Í gær gaf ég fáeinum heppnum tvo boðsmiða á myndina og núna ætla ég að gera það sama (og líka á morgun). Sömu reglur; Þú sendir mér bara tölvupóst (tommi@kvikmyndir.is) og segir mér hverjar þínar 3 uppáhalds glæpamyndir eru. Ég dreg svo af handahófi kl. 20 í kvöld og sendi vinningshöfum póst tilbaka. Miðarnir bíða þeim í bíóinu síðan. ATH. Kennitala þarf að fygla með þar sem myndin er bönnuð innan 16 ára.

T.V.