Fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd kemur í október

Langdýrasta kvikmynd Íslandssögunnar verður frumsýnd þann 14. október nk. Um er að ræða teiknimyndina Hetjur Valhallar, en hún er fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd.

Aðalsöguhetja myndarinnar er hinn ungi Þór sem dreymir um frægð og frama á vígvellinum fjarri járnsmiðju móður sinnar. Sagan segir að hann sé sonur sjálfs Óðins, konungs guðanna og þess vegna trúa því allir að Óðinn muni vernda Þór og þorp hans
fyrir jötnun og öðrum illum öflum. En á meðan Þór lætur sig dreyma um frægð og frama
bruggar Hel drottning Undirheimanna ráð gegn mönnum og guðum. Á sama tíma fær
Þór á ótrúlegan hátt upp í hendurnar kröftugasta vopn veraldar, hamarinn Mjölni. Þegar
heimurinn er á heljarþröm þarf Þór að taka á honum stóra sínum og beisla krafta Mjölnis
því örlög alls heimsins eru í þeirra höndum.

CAOZ er aðalframleiðandi myndarinnar en meðframleiðslufyrirtæki eru Magma
Productions á Írlandi og Ulysses Filmproduktion í Þýskalandi. Myndin er jafnframt styrkt
af 10 sjóðum, Kvikmyndasjóði Íslands, Nordisk Film og TV Fund, Iðnaðarráðuneytinu,
Eurimages, Media, Kvikmyndasjóði Hamborgar, Þýska kvikmyndasjóðnum, Nordmedia,
Tækniþróunarsjóðnum og Írska kvikmyndasjóðnum.

Leikstjóri myndarinnar er Óskar Jónasson og aðalútlitshönnuður er Gunnar Karlsson.
Hilmar Sigurðsson og Arnar Þórisson eru framleiðendur myndarinnar.