Það er alltaf gaman þegar lógó stúdíóanna uppfærast og breytast örlítið með reglulegu millibili. 20th Century Fox breytti um sitt fyrir ekkert alltof löngu síðan og frumsýndi það á undan Avatar. Núna er Paramount-fjallið fræga að taka á sig nýja mynd í tilefni 100 ára afmæli síns á næsta ári!
Hérna er stilla af nýja lógóinu, sem mun sjást fyrir framan Paramount-myndir frá og með Mission: Impossible – Ghost Protocol. Talan 100 verður svo fjarlægð þegar líður að þarnæsta ári. Ekki mikið svosem hægt að segja annað. Núna er allavega fallegri og nútímalegri bragur á því. Gamla lógóið sjáið þið svo beint fyrir neðan: