Ný gagnrýni og árslisti

Í nýjasta þætti Tomma & Sindra, sem er aðgengilegur hér til hliðar á vídeósvæðinu, taka þeir félagar fyrir myndina National Treasure: Book of Secrets.  Tommi gefur henni eina og hálfa stjörnu og kallar hana endurtekningu á forvera sínum ásamt því að vera bara hreinlega kjánalega.
Sindri rýnir í Bob Dylan myndina I´m Not there og hlýtur hún tvær og hálfa. Hann segir myndina vel leikna og mjög djúpa en voða ómarkvissa. Einnig telja drengirnir upp 5 verstu bíómyndir síðasta árs að þeirra mati.