Eiginkona Darth Vader slegin í andlitið

Eiginkona Darth Vader var slegin í andlitið á dögunum. Árásarmaðurinn var umsvifalaust handtekinn og dæmdur fyrir verknaðinn.

Þetta er engin lygi því eiginkona manns sem lét breyta nafninu sínu í Darth Vader varð fyrir líkamsárás í borginni Walsall á Englandi í september. 

Samkvæmt The Huffington Post var hinn 35 ára Ikbal Hare handtekinn vegna árásarinnar. Hann ætlaði upphaflega að slá Vader, sem áður hét Mark Nokes, í andlitið en hitti óvart eiginkonu hans í staðinn. Eftir það hljóp Hare á brott, hugsanlega af ótta við grimmilegar hefndaraðgerðir Vader, en var handtekinn skömmu síðar. Hann var dæmdur til að inna af hendi 18 mánaða samfélagsþjónustu og til að sækja námskeið í reiðistjórnun.

 

 

 

Stikk: