Happy Go Lucky stjarna bætist í Godzilla hópinn

Enska leikkonan Sally Hawkins hefur bæst í leikarahópinn í Godzilla. Sally, sem þekkt er fyrir leik m.a. í myndinni Happy Go Lucky, hittir þar fyrir leikarana Aaron Taylor-Johnson, Elizabeth Olsen, Ken Watanabe, David Strathairn, Brian Cranston og Juliette Binoche sem öll eru staðfest í leikarahópi myndarinnar.

Um er að ræða endurgerð á fyrri Godzilla mynd sem gerð var í Hollywood og frumsýnd árið 1998. Myndinni verður leikstýrt af Gareth Edwards eftir handriti Max Borenstein, Frank Darabont og Dave Callaham.

Það litla sem vitað er um söguþráðinn í myndinni er að aðalpersónan á að verða hermaður og í myndinni verða að minnsta kosti tvö skrýmsli fyrir utan Godzilla ófreskjuna.

Myndin verður frumsýnd þann 16. mars á næsta ári.

 

Stikk: