Nýr leikur í októberblaðinu – Finndu stjörnuna!
Og þá er bara að skella sér í leikinn sem er í októberblaði Mynda mánaðarins en hann snýst að þessu sinni um að finna stjörnuna sem hefur verið komið fyrir einhvers staðar í Bíó- eða DVD hluta blaðsins.
Sem fyrr þurfa þátttakendur að finna stjörnuna og svara því á hvaða blaðsíðu hún er.
Í vinning að þessu sinni eru 5 x 2 bíómiðar.