Frumsýningardagur Star Wars: Episode VII verður 18. desember árið 2015 í Norður-Ameríku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Disney og LucasFilm.
„Við erum mjög spennt að deila með ykkur opinberum sýningardegi Star Wars: Episode VII árið 2015. Þessi dagsetning hentar vel fyrir þá sem eru komnir í jólafrí og einnig veitir hann hinum frábæru kvikmyndagerðarmönnum okkar tíma til að búa til stórkostlega mynd,“ sagði Alan Horn, formaður The Walt Disney Studios.
Áheyrnarprufur fyrir myndina verða haldnar á næstunni í Bretlandi og á Írlandi.