Kate Bosworth og Thomas Jane munu leika aðalhlutverkið í hrollvekju – spennutryllinum Somnia, sem byrjað verður að taka upp á morgun, 11. nóvember.
Mike Flanagan leikstýrir.
Somnia fjallar um munaðarlaust barn og drauma þess og martraðir, sem gerast raunverulega á meðan það sefur.
Jacob Tremblay mun leika barnið.
Bosworth sést næst í spennumyndinni Homefront, sem gerð er eftir handriti Sylvester Stallone, og Jane sést næst í Drive Hard ásamt John Cusack.