Eric Roberts staðfestur í 53 verkefni á næstu 2 árum

071212-eric-robertsBandaríski leikarinn Eric Roberts hefur nóg fyrir stafni næstu árin og er með 53 verkefni á döfinni fyrir árið 2016. Hvort um sé að ræða met, er ekki vitað. Af þessum 53 verkefnum, eru 8 titlaðar „í gerð“. Hvernig Roberts nær að sameina líf sitt sem einstaklingur og að leika 8 mismunandi hlutverk á sama tíma, er vissulega ráðgáta.

Eric Roberts er stóri bróðir Juliu Roberts og hefur átt misgóðan feril, þó hefur hann fengið óskarsverðlaunatilnefningu fyrir leik sinni i Runaway Train, sem var gerð árið 1985. Roberts fær lítið af bitastæðum hlutverkum, en hefur átt fínan leik undanfarið, í skúrkahlutverkum í The Dark Knight og The Expendables.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast IMDb-síðuna hans hér.

Stikk: