Fyrsta sýnishornið úr nýju Star Wars myndinni, Star Wars: The Force Awakens, var frumsýnt fyrr í dag. Í sýnishorninu fáum við að sjá ýmsa kunnuglega hluti; stormsveitarmenn, vélmenni, X-vængjur, geislasverð, og svo það sem allir þekkja, Star Wars lagið eftir John Williams, og geimskipið Millenium Falcon.
Um er að ræða 88 sekúndna langa kitlu sem var frumsýnd fyrst í 30 bandarískum kvikmyndahúsum, en fór svo á netið.
Mikil leynd hefur hvílt yfir þessari mynd sem JJ Abrams leikstýrir, og margir bíða spenntir eftir, en erfitt er að ráða nokkuð í söguþráð myndarinnar út frá kitlunni.
Myndin er væntanleg í bíó 18. desember á næsta ári.
Kíktu á kitluna hér fyrir neðan: