Það eru eru ekki allir sem hlakka til þess að enda á elliheimili. Í hugum margra er lítið um líf og fjör á stofnunum þar sem gamalt fólk er sett saman, en þó ekki í öllum tilfellum.
Á elliheimilinu Shenley Wood í bænum Milton Keynes á Englandi hefur gamla fólkið nóg fyrir stafni. Rétt fyrir áramót tóku þau sig saman og fóru í myndatöku og endurgerðu nokkur af frægustu kvikmyndaplakötum allra tíma.
Myndirnar voru gerðar fyrir dagatal elliheimilisins og gerðu þau ný plaköt fyrir myndir á borð við Grease, Star Wars og Harry Potter.
Hér að neðan má sjá þessar frábæru endurgerðir.