„Mig langar ekkert endilega að vera flokkuð sem kvenleikstjóri þó að mér finnist það ágætur kostur. Mig langar bara að vera góður leikstjóri sem fjallar um áhugaverðar sögur og karaktera,“ segir leikstjórinn Þóra Hilmarsdóttir en hún leikstýrir um þessar mundir bresku þáttunum The Rising. Þættirnir eru framleiddir af Sky Studios og eru tökur hafnar í Bretlandi.
Í viðtali við MBL ræðir Þóra upphafið, ferilinn að baki sem framundan, karllægan bransa og breytingar sem hafa þar orðið. Þóra segir einnig ekki svo ólíkt að vinna að þáttagerð hér á Íslandi eða úti í Bretlandi. „Við erum öll að tala sama tungumálið þegar kemur að vinnunni. Hér úti er batteríið aðeins stærra, fleiri í hverri grein og með sitt sérsvið. En þetta er líka bara stærri framleiðsla,“ segir hún.
Að framleiðslu The Rising lokinni er margt á döfinni hjá Þóru, til að mynda nokkur þáttaverkefni á frumstigi, bæði hér og erlendis. Jafnframt eru þær Snjólaug Lúðvíksdóttir með tilbúið handrit að Konum eftir Steinar Braga og bíða eftir hentugum tíma til að koma þeirri framleiðslu í gang.
Þóra hefur farið yfir víðan völl og leikstýrt fjölda stuttmynda, tónlistarmyndbanda og auglýsinga. Á síðasta ári leikstýrði hún auglýsingu símafyrirtækisins Nova sem vakti mikla athygli, þar sem allir voru allsberir í henni. Þau unnu Lúðurinn fyrir auglýsinguna. Má þess geta að Þóra leikstýrði tveimur þáttum af Broti og einum þætti af Netflix-þáttaröðinni Kötlu sem er væntanleg 17. júní.
„Sjónvarpsþáttagerðin er svo sterk núna að það er erfiðara að koma kvikmyndum í framleiðslu. Þar spilar heimsfaraldurinn líka inn í því færri fara í bíó og færri stórar kvikmyndir hafa verið fumsýndar síðustu misseri,“ segir Þóra í viðtalinu og dásamar þar einnig íslenska kvikmyndagerð.
„Við Íslendingar erum komnir svo framarlega í kvikmyndagerð. Ég tek stundum eftir hlutum hér úti sem mér finnst betur staðið að á Íslandi.“