Mikil eftirvænting eftir nýjustu mynd James Camero

Fólk beggja vegna við Atlandshafið bíður með mikill eftirvæntingu eftir, nýjustu mynd James Cameroon, Avatar. James er sá sem gerði myndina Titanic fyrir tólf árum síðan. En
haldið ykkur hægar kæru kvenlesendur því Leonardo diCaprio mun ekki etja
tunguglímu við Kate Winslet í þessari mynd. Nei þau verða fjarri góðu gamni en
örvæntið þó ekki því kyntröllið Sam Worthington, Terminator Salvation, mun fara
með aðalhlutverkið í Avatar á móti þokkagyðjunni Zoe Saldana, sem lék Uhura í
nýjustu Star Trek myndinni.

Þó myndin hafi ekkert með Titanic að gera þá breytir það
ekki því að kvikmyndaunnendur hafa nú beðið í tólf ár eftir nýju meistarastykki
frá leikjstjóranum. Og margir orðnir spenntir að sjá hvaða gullmola hann ætlar
að punga út. Það er ekki að ástæðulausu heldur því myndin státar af hvorki
meira né minna en 200 milljón dollara fjármagni og á að vera sú allra
tæknivæddasta og dýrasta mynd sem nokkurntíma hefur verið gerð. Blandast munu
saman tölvugerðir og raunverulegir leikarar en þeir tölvugerðu eiga vart að
þekkjast frá hinum raunverulegu. Fyrirtæki Peter Jacksons  kemur þar við sögu en þeir sáu um samskonar
tæknibrellur fyrir til dæmis Gollum í Lord Of The Rings og King Kong í
samnefndri mynd. Ekki nóg með það heldur verður myndin einnig tekin upp bæði
með tví og þrívíddartækni. Nýlega var 20 mínútna bíóbrot sýnt völdum hópi áhorfanda og lýstu þeir þessu sem sjónrænum demanti, þeir hafi vart haldið vatni né poppi og kóki yfir brotinu. Við
íslendingar fáum hins vegar ekki að dæma um það fyrr en í Desember þegar
sýningar hefjast hér á landi.

Avatar  sem er
vísindaskáldskapur segir James að sé hugaróri hans sem sameini allar bestu
vísindaskáldsögur sem hann las sem krakki. James er enginn nýgræðingur í
vísindaskáldskap enda leikstýrði hann myndunum Terminator, Terminator 2 og
Aliens. En þess má geta að Sigourney Weaver sem lék Ellen Ripley í Aliens  mun leika í þessari nýjustu mynd James
Cameron.

Á meðfylgjandi myndum má sjá „concept art“ úr
Avatar :

http://www.imgdumpen.nl/images/bfi1246325656e.jpg

http://www.imgdumpen.nl/images/viu1246326147b.jpg

http://www.imgdumpen.nl/images/bfi1246326186k.jpg

Mikil eftirvænting eftir nýjustu mynd James Camero

Mikil eftirvænting hefur skapast beggja vegna Atlandshafs á nýjasta verkefni James Cameroon, bíómyndinni Avatar. James Cameron er sá sem gerði Titanic fyrir tólf árum síðan. En haldið ykkur hægar kæru kvenlesendur því Leonardo diCaprio mun ekki etja tunguglímu við Kate Winslet í þessari mynd. Nei þau verða fjarri góðu gamni en örvæntið þó ekki því kyntröllið Sam Worthington, Terminator Salvation, mun fara með aðalhlutverkið í Avatar á móti þokkagyðjunni Zoe Saldana, sem lék Uhura í nýjustu Star Trek myndinni.

Þó myndin hafi ekkert með Titanic að gera þá breytir það ekki því að kvikmyndaunnendur hafa nú beðið í tólf ár eftir nýju meistarastykki frá leikjstjóranum. Og margir orðnir spenntir að sjá hvaða gullmola hann ætlar að punga út. Það er ekki að ástæðulausu heldur því myndin státar af hvorki meira né minna en 200 milljón dollara fjármagni og á að vera sú allra tæknivæddasta og dýrasta mynd sem nokkurntíma hefur verið gerð. Blandast munu saman tölvugerðir og raunverulegir leikarar en þeir tölvugerðu eiga vart að þekkjast frá hinum raunverulegu. Fyrirtæki Peter Jacksons kemur þar við sögu en þeir sáu um samskonar tæknibrellur fyrir til dæmis Gollum í Lord Of The Rings og King Kong í samnefndri mynd. Ekki nóg með það heldur verður myndin einnig tekin upp bæði með tví og þrívíddartækni.

Avatar sem er vísindaskáldskapur segir James að sé hugaróri hans sem sameini allar bestu vísindaskáldsögur sem hann las sem krakki. James er enginn nýgræðingur í vísindaskáldskap enda leikstýrði hann myndunum Terminator, Terminator 2 og Aliens. En þess má geta að Sigourney Weaver sem lék Ellen Ripley í Aliens mun leika í þessari nýjustu mynd James Cameron.

Á meðfylgjandi myndum má sjá „concept art“ úr Avatar en þeir sem til þekkja segja að myndin sé undurfallegt meistaraverk, við íslendingar fáum hins vegar ekki að dæma um það fyrr en í Desember þegar sýningar hefjast hér á landi.