Umfjöllun: Ice Age 3

Eftirfarandi dómur er spoiler-laus.

„A.m.k. er hún skárri en nr. 2“

Það er spes hvernig maður endar alltaf með því að bera ómerkilegar
teiknimyndir saman við Pixar. Það er víst óhjákvæmanlegt, enda eru
mennirnir þar algjörir meistarar í frásögn og hugmyndaflugi. Þegar þeir
punga út teiknimynd sem græðir slatta í miðasölum þá nota þeir þann
pening til að fjármagna aðra, en þá ferska, allt öðruvísi mynd með
ferskum söguþræði og nýjum persónum, í stað þess að mjólka út
tilgangslaus framhöld til að fara „öruggu“ leiðina. Maður hefur hingað
til heyrt sjaldan minnst á Pixar-framhaldsmyndir, meðan stúdíó eins og
Dreamworks þrykkir út þremur (bráðum fjórum) Shrek-myndum og Fox gerir
hið sama með hina útdauðu Ice Age-seríu.

Ice Age 3: Yawn… Dawn
of the Dinosaurs er eins stöðluð og teiknimyndir gerast. Hún hefur
pínulítinn skammt af fullorðinshúmor (t.d. þegar letidýrið Sid fróar
óvart karlkyns vísundi!), slatta af barnabröndurum og háværum
ærslagangi ásamt söguþræði sem breytist ekkert né þróast. Þú veist
nákvæmlega hvernig allt fer í lokin og eini metnaðurinn er bara að hafa
skæra liti, reglulegan hasar og hratt flæði. Litlir krakkar gera svosem
ekki hærri kröfur, svo ég efa ekki að þeir skemmti sér á myndinni.

Það
er engu að síður merki um öfluga fjölskyldumynd þegar það er eitthvað
mikið til staðar handa fólki á öllum aldri. Augljóslega þá er Ice Age 3
ekki þannig mynd. Myndin byrjar ekkert sérstaklega vel og kynnir aftur
til leiks persónur sem ég sjálfur var kominn með nóg af. Það var ekki
fyrr en svona 20 mínútur/hálftíma inn í myndina þar sem hún tók smá
kipp og varð aðeins líflegri, þökk sé Simon Pegg, sem talsetur mörðinn
Buck af heilmiklum hressleika. Hann var líka eina persónan sem mér
líkaði eitthvað við. Ókei, Diego var reyndar fínn líka. Restin af
dýrunum er farin að fara dálítið í taugarnar á mér (þ.e.a.s fyrir utan
þá sem þegar voru óþolandi, eins og pokarotturnar tvær), meira að segja
taugaveiklaði íkorninn. Hann var frábær í fyrstu myndinni,
skítsæmilegur í annarri en núna eru sketch-arnir vel farnir að þynnast
út. Myndin reynir að krydda aðeins upp á hans nærveru með að skella
kvenkyns íkorna með honum, en brandararnir eru samt þeir sömu og mér
finnst það eiginlega hálf sjúkt hversu sterk hrifning þeirra beggja á
einni hnetu (eða hvað sem þetta heitir) getur verið. Við fáum jafnvel
að sjá „áhrifaríka“ senu sem sýnir ástarsorg… frá sjónarhorni
hnetunnar! Hversu steikt er það??

Mér fannst fyrsta Ice
Age-myndin virkilega fín. Pínu gleymd en skemmtileg engu að síður. Ég
missti áhugann á öllu þessu sögusviði eftir Ice Age 2, enda var hún
frekar leiðinleg. Þessi þriðja er greinilega ekki gerð af hugsjónum, og
ég stórefa að framleiðendur hafi ákveðið að gera hana til að dýpka
persónusköpunina. Nei, peningaplottið er auðsjáanlegt, en, eins og ég
segi, krökkum er alveg sama. Fullorðnir verða bara að harka það af sér
ef þeir neyðast til að sitja yfir þessu með þeim. Mætti alveg gera
verra. Myndin er alls ekki leiðinleg, heldur bara svo andskoti
tilangslaus.

5/10