Marvel kvikmyndafyrirtækið hefur bætt um betur og setti nú í dag kitlu á netið sem mannsaugað getur greint, en í gær settu þeir ofur-litla kitlu á netið, sem enginn gat horft á nema í gegnum smásjá!
Í kitlunni sjáum við Ant-Man sjálfan, Paul Rudd, með plástur á enni, labba í fylgd lögreglumanna og svo myndir af leikurunum Evangeline Lilly og Corey Stoll, nokkrar bardagasenur, og svo textinn: Something Big Arrives.
Stikla í fullri lengd kemur á þriðjudaginn næsta, eins og við sögðum frá í gær.