Besta leiga landsins eyðilögð!

Eftirfarandi frétt er tekin af Visir.is:

Húsnæði Laugarásvideós brann til kaldra kola í nótt. Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn um klukkan 25 mínútur í fjögur.

Samkvæmt
upplýsingum frá slökkviliðinu er videoleigan mikið skemmd eða ónýt.
Óttast er að reykskemmdir hafi orðið á húsnæði þeirra fyrirtækja sem
eru næst videoleigunni og íbúða sem eru fyrir ofan hana.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var slökkvistarfi lokið upp úr klukkan fimm.

Þá
var óskað eftir aðstoð Rauða krossins og mættu tveir sjálfboðaliðar úr
viðbragðhópi Rauða krossins á vettvang. Rauði krossinn veitti íbúum í
húsinu aðhlynningu og sálrænan stuðning og miðlaði upplýsingum auk þess
sem útveguð var gisting fyrir þrjá íbúa.

Í fréttatilkynningu frá Rauða krossinum segir að fólkinu verði boðin aðstoð ef á þarf að halda næstu daga.

Grunur leikur á að kveikt hafi verið í húsinu.

Vægast sagt sorglegur dagur fyrir þá sem hafa verið fastagestir þarna í mörg ár. Við aðstandendur Kvikmyndir.is vorum t.d. meðal þeirra.