Boðið upp á þriðja Réttinn

Undirbúningur er hafinn að gerð þriðju seríunnar af lögfræðispennuþáttunum Réttur. Handritshöfundar eru þeir Kristinn Þórðarson, Þorleifur Arnarson leikstjóri, Jón Ármann Steinsson og Andri Óttarsson lögfræðingur.

réttur

Kristinn segir í samtali við vísir.is að það sé mikill fengur að því að fá Þorleif til liðs við þá félaga. „Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Þorleif til liðs við okkur og svo erum við Jón Ármann vinir síðan í Los Angeles þar sem hann lærði handritaskrif. Andri er svo ekki bara fær penni heldur góður lögfræðingur og getur veitt okkur líka faglega ráðgjöf við skrifin,“ segir Kristinn við vísir.is.

Kristinn kom sjálfur að gerð fyrstu Réttarseríunnar en síðustu tvær seríur hafa verið skrifaðar af Sigurjóni Kjartanssyni og Margréti Örnólfsdóttur.

Búist er við því að þættirnir fari í framleiðslu og sýningu á Stöð 2 á næsta ári en gera á átta þætti. Kristinn segir þá ætla að byggja á sama grunni og leikarateymi og í fyrstu tveimur seríunum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Magnús Jónsson voru meðal aðalleikara í fyrstu tveimur seríunum. „Við kynnum allavega einn nýjan karakter til leiks. Við stefnum á að koma á óvart og koma með meiri spennu inn í þessa seríu,“ segir Kristinn við vísir.is

Stikk: