Hollywood goðsögnin Tom Cruise er mættur aftur í fyrstu stiklu fyrir nýjustu Mission: Impossible myndina, Mission: Impossible – The Final Reckoning sem er sú áttunda í röðinni.
Hann hleypur, stekkur og hættir lífi sínu á margvíslegan hátt í stiklunni fyrir myndina sem margir bíða spenntir eftir og kemur í bíó 23. maí nk.
Með honum eru gamlir kunningjar, leikararnir Ving Rhames sem Luther Stickell, Simon Pegg sem Benji Dunn og Hayley Atwell sem Grace auk annarra en saman ætla þau að koma í veg fyrir tortímingu mannkyns rétt eina ferðina.
Sjáðu stikluna hér fyrir neðan og glænýtt plakat þar fyrir neðan: