Íslenska kvikmyndin Hross verður frumsýnd haustið 2013 en myndin er eftir leikarann og leikstjórann Benedikt Erlingsson, sem bæði skrifar handrit og leikstýrir myndinni. Framleiðandi er Friðrik Þór Friðriksson. Upptökum á myndinni er nú nýlokið, en þær fóru fram í uppsveitum Borgarfjarðar, og aðallega á þremur bæjum í Hvítársíðu þar sem aðalsöguhetjurnar í myndinni búa. Bæirnir eru Hvammur, Hallkelsstaðir, Fróðastaðir og Fljótstunga. Einnig voru senur teknar upp á Kaldadal og að Hraunsási í Hálsasveit, að því er fram kemur í vikublaðinu Skessuhorni sem gefið er út á Vesturlandi.
Í samtali við RÚV á dögunum sagði Benedikt að honum finndist sögusvið myndarinnar mjög heillandi, samspil manns og dýrs, og sagði dýrið í manninum afhjúpast í samskiptum við hesta og mennskan í hestinum líka.
„Þetta er innansveitarkróníka um mann sem á meri og sjálfstraust hans byggist mikið á þessari meri. Merin hlýðir kalli náttúrunnar og niðurlægir manninn og félagslegri stöðu hans er rústað í sveitinni, og sambandi hans við konuna sem hann er að gera hosur sínar grænar fyrir, og hefur miklar afleiðingar og það fer af stað mikill örlagavefur,“ sagði Benedikt í samtali við RÚV.
Smelltu hér til að horfa á umfjöllun RÚV um myndina.