Hingað til hefur árið 2020 verið eins og eitthvað úr súrrealískri stórslysamynd. Nú hefur hið furðulega náð hinu ótrúlegasta hámarki og snýr það (en ekki hvað?) að söngleiknum Cats.
Umtalið í kringum myndina hefur yfirleitt verið annaðhvort eitrað eða undirstaða óteljandi brandara. Nýverið var skammarstimpillinn endanlega innsiglaður í Hollywood þegar myndin vann til fimm Razzie-verðlauna, þar á meðal fyrir verstu mynd og verstu leikstjórn.
Aðstandendur myndarinnar gerðu þó eflaust ekki ráð fyrir því að þetta væri aðeins upphafið að þeim logandi umræðum sem mynduðust í kringum söngleikinn á dögunum. Hafa nú fjölmargir víða um heim krafist þess að sérstök útgáfa af myndinni verði gefin út – þekkt sem „Útgáfan með endaþarmsopin“ eða „Rassgatsklippið“.
Eina starfið hans
Það var rithöfundurinn Jack Waz sem vakti athygli á fyrirbærinu sem er lyginni líkust. Hann rekur sögu af vini vinar síns, sem starfar í sjónbrellugeirandum, sem var falið það verkefni að eiga við eitthvað af brelluskotum myndarinnar. Waz segir:
„Eina starfið hans var að fjarlægja tölvugerð endaþarmsop, en þeim var bætt inn nokkrum mánuðum áður. Þetta þýðir þá að einhvers staðar þarna úti er til rassgatsklipp af Cats.“
Á skömmum tíma hefur myllumerkið #ReleaseTheButtholeCut vakið gríðarlega athygli á veraldarvefnum og eru margir þekktir leikarar, kvikmyndagerðarmenn og gagnrýnendur búnir að lýsa yfir stuðningi sínum á „rassköttinu.“ Á meðal nafna eru Rian Johnson, Alex Winter, Paul Scheer, Lindsay Ellis og Seth Rogen.
„Við þurfum öll á þessu að halda núna“
Seth Rogen gafst upp – „Sumir kettir eru í buxum, aðrir ekki“
Ber að geta að Rogen gerði nýlega tilraun til þess að horfa á Cats og stóðst ekki mátið að hlaða í allmörg tíst á meðan glápinu stóð. Leikarinn og grínarinn fór ekki leynt með það (frekar en fyrri daginn) að hann hafi horft á söngleikinn skakkur og sagði hann myndina bæði vera súrrealíska og óskiljanlega.
Tístin hans Rogen eru eflaust skemmtilegri en myndin sjálf. Hann játaði sig þó sigraðan á endanum og gafst upp á myndinni til að horfa á 90 Day Fiancé í staðinn.