Final Destination 6 og 7 á áætlun

Fimmta myndin í hryllingsmyndabálknum Final Destination er nú á leiðinni í kvikmyndahús, en í nýlegu viðtali við leikarann Tony Todd komust þeir hjá DreadCentral að búast mætti við enn fleiri myndum.

Todd, sem fór með aukahlutverk í fyrstu tveimur myndunum sem og smáhlutverk í þeirri þriðju, sagði í viðtalinu; „Handritshöfundarnir stækkuðu hlutverk mitt, sem ég er mjög ánægður með. Framleiðendurnir sögðu mér eftir að tökum lauk að ef þessi mynd lendir í fyrsta sæti aðsóknarlistans verða tvær í viðbót teknar upp á sama tíma.“

– Bjarki Dagur