Taktu þátt í aprílleik hér á kvikmyndir.is!
Kvikmyndir.is og Myndir mánaðarins standa nú í apríl fyrir skemmtilegum leik, en heppnir þátttakendur geta unnið sér inn flugmiða fyrir 2 eða bíómiða fyrir tvo sem gildir í öllum helstu bíóhúsum.
Leikurinn er mjög einfaldur. Búið er að koma fyrir flugvél, svipuðum þeim sem sést á myndinni sem fylgir þessari frétt, einhversstaðar í BÍÓ – hluta Mynda – mánaðarins. Ef þú finnur flugvélina smellirðu á Taka þátt, svarar því á hvaða blaðsíðu flugvélin er, og skilur eftir nafn og heimilisfang.
Frestur til að skila inn lausn er til og með 18. apríl nk.
Dregið verður úr innsendum lausnum þann 19. apríl og hljóta 5 heppnir þátttakendur miða fyrir tvo í bíó.
Gangi þér vel!

