Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er (The Love That Remains), heldur áfram sigurgöngu sinni um heiminn og hefur nú verið valin á fjölda erlendra lista yfir bestu kvikmyndir ársins 2025, en frá þessu segir í fréttatilkynningu frá framleiðanda kvikmyndarinnar, Still Vivid.
Myndin var heimsfrumsýnd á Cannes-hátíðinni í maí á síðasta ári og hefur síðan verið sýnd á mörgum af virtustu kvikmyndahátíðum heims, þar á meðal Toronto, Busan, San Sebastián, New York, London, Chicago, Palm Springs, AFI, Marrakech, Sydney og Karlovy Vary, svo fátt eitt sé nefnt. Hingað til hefur myndin unnið sjö alþjóðleg verðlaun og verið seld til yfir 40 landa.

Komin á VOD – nýtt íslenskt plakat
Ástin sem eftir er er nú komin á VOD-leigur landsins, samhliða því að nýtt íslenskt plakat hefur verið gefið út. Plakatið er það þriðja í röðinni fyrir myndina og er hannað af Daníel Imsland, líkt og fyrri útgáfur. Plakatið má sjá hér neðst í fréttinni.
Myndin fór í almennar bíósýningar á Íslandi í ágúst, en hóf síðan sýningar undir lok árs í Grikklandi, Frakklandi, Danmörku og Hollandi. Í janúar fer hún svo í kvikmyndahús í Bandaríkjunum, Tyrklandi og Noregi.
Á meðal bestu mynda ársins víða um heim
Myndin hefur vakið mikla athygli gagnrýnenda og ratað á fjölda ársloka- og topplista:
- Valin í hóp fimm bestu alþjóðlegu kvikmynda ársins hjá National Board of Review
👉 https://www.indiewire.com/awards/results/2025-national-board-of-review-winners-1235164606/ - Valin á 11 einstaklingslista hjá Film Comment
👉 https://www.filmcomment.com/best-films-of-2025-individual-ballots/ - Á topp 10 listum fjögurra gagnrýnenda hjá Cineuropa
👉 https://cineuropa.org/newsdetail/486988/ - Í 32. sæti yfir bestu myndir ársins hjá The Film Stage
👉 https://thefilmstage.com/the-film-stages-top-50-films-of-2025/ - Í 10. sæti hjá Cutting Edge
👉 https://www.cuttingedge.be/films-series/33103/dit-is-de-top-tien-beste-films-van-2025-volgens-bert-potvliege/ - Í 27. sæti hjá breska kvikmyndaritinu Sight & Sound
👉 https://letterboxd.com/bfi/list/sight-and-sounds-50-best-films-of-2025/ - Í 14. sæti á lista CBC yfir bestu myndir ársins
👉 https://www.cbc.ca/news/entertainment/best-movies-film-2025-9.7018198
Auk þess hefur myndin verið valin á lista The Film Stage yfir bestu kvikmyndatöku ársins
👉 https://thefilmstage.com/the-best-cinematography-of-2025/
og einnig á lista MUBI yfir bestu kvikmyndaplaköt ársins
👉 https://mubi.com/en/notebook/posts/the-best-movie-posters-of-2025
Ari Aster ræðir við Hlyn Pálmason
Í tilkynningunni kemur fram að leikstjórinn kunni Ari Aster (Hereditary, Midsommar, Eddington) hafi nýlega tekið viðtal við Hlyn Pálmason um myndina og feril hans í heild sinni. Viðtalið birtist í The Hollywood Reporter og má lesa hér:
👉 https://www.hollywoodreporter.com/movies/movie-news/iceland-oscar-2026-ari-aster-the-love-that-remains-palmason-1236447813/


