Búið er að birta fyrstu myndina úr mynd Baltasars Kormáks, 2 Guns, með þeim Denzel Washington og Mark Wahlberg í aðalhlutverkum.
Myndin fjallar um eiturlyfjalögreglumann og mann úr leyniþjónustu sjóhersins sem fá það verkefni að rannsaka hvorn annan. Þeir komast síðan að því að mafían stendur á bakvið málið allt, og er einmitt aðilinn sem báðir menn telja sig hafa verið að stela pening af.
Sjáið myndina hér að neðan:
2 Guns er gerð eftir teiknimyndasögu eftir Steven Grant, og handritshöfundurinn hefur unnið fyrir Marvel, D.C. og Dark Horse fyrirtækin m.a.
Myndin kemur í bíó 16. ágúst nk.