Ný stikla er komin í loftið úr vampírumyndinni Byzantium. Gemma Arterton og Saoirse Ronan leika vampírumæðgur sem eru á flótta.
Leikstjóri er Neil Jordan, sem einnig gerði Interview With The Vampire árið 1994 með Brad Pitt og Tom Cruise í stórum hlutverkum.
Aðrir leikarar í Byzantium eru Jonny Lee Miller, Sam Riley, Landry Jones og Daniel Mays.
Nýjasta mynd Gemma Arterton er Hansel & Gretel: Witch Hunters sem fór á toppinn í Norður-Ameríku fyrir skömmu.
Hér er stiklan fyrir Byzantium, sem kemur í bíó í Bretlandi 13. júní.