Setrið sem Don Corleone kallaði heimili sitt í hinni goðsagankenndu Godfather er nú til sölu. Húsið, sem er rúmlega 24.000 sq. ft. og skartar hvorki meira né minna en 8 svefnherbergjum, mun ekki kosta meira en 3 milljónir bandaríkjadala.
Eins og margir muna eflaust eftir var húsið meðal annars notað fyrir brúðkaupsveislu dóttur Don Corleone sem og þeirra matarboða og fjölskyldufunda sem áttu sér stað á meðan tökum stóð, en myndin sjálf kom út árið 1972. Fyrrverandi eigandi hússins lést nýverið, 90 ára að aldri, en nágrannarnir segjast vona að nýjir eigendur geri ekki breytingar á húsinu.
„Við vonum að sá sem kaupir húsið vilji ekki rífa það niður og byggja eitthvað annað. Þetta er gullfallegt heimili.“
– Bjarki Dagur