Gamanleikarinn Kevin Hart hefur gert samning við Motown Records útgáfufyrirtækið um útgáfu á hljómplötu hliðarsjálfs Hart, Chocolate Droppa, eða Súkkulaðidropi, í lauslegri þýðingu.
Þessi fyrsta hljómplata Hart mun koma út nú í haust, samkvæmt Billboard, sem sagði fyrst frá málinu.
Engar frekari upplýsingar um plötuna liggja fyrir.
Leikarinn staðfesti fréttirnar á samfélagsmiðlum fyrir helgi.
Í myndbandi, sem sjá má hér að neðan, sést hann rappa af miklu listfengi, og segist þar ætla að rassskella ýmsa fræga rappara eins og Drake, Future, Jay Z og 2 Chainz.
Sjáðu Hart, eða öllu heldur Chocolate Droppa, með því að smella hér.