Ástand leikara framhaldsmyndarinnar Anchorman: The Legend Continues var síbreytilegt á tökustað í New York um helgina. Leikararnir voru ýmist lemstraðir, í vígarhug eða í fullu fjöri.
Will Ferrell var handleggsbrotinn í einu atriðinu en var þó fljótur að bregða sér í betri fötin og var orðin stórglæsilegur eftirmiðdaginn, við hlið mótleikkonu sinnar, Christinu Applegate. Rapparinn Drake var mættur á tökustað með afró og leikarinn Steve Carrell var með einhverskonar bitvörn líkt og hundar sem naga eða bíta frá sér.
Aðalleikarnir fjórir stilltu sér síðan upp á gangbraut líkt og Bítlarnir gerðu forðum fyrir plötuumslag Abbey Road.
Anchorman: The Legend Continues verður frumsýnd í Bandaríkjunum þann 20. desember 2013.