Seint í gærkvöldi, miðvikudagskvöld, kviknaði í heimili James Bond leikarans Pierce Brosnan í Malibu í Flórída.
Eldurinn átti upptök sín í bílskúrnum samkvæmt KABC, en slökkviliðið kom fljótt á vettvang og réði niðurlögum eldsins.
Engin slys urðu á fólki.
Vitni setti þessar myndir af eldsvoðanum á Youtube:
Brosnan, sem er 61 árs gamall, er þekktastur fyrir að leika James Bond í myndunum “Die Another Day,” “The World Is Not Enough” og “GoldenEye.”
Síðan þá hefur hann leikið í fjölda mynda, eins og t.d. “The Ghost Writer” og “November Man.”