Nýr leikur í janúarblaðinu – Finndu snjókarlinn!
Og þá er bara að skella sér í leikinn sem er í janúarblaði Mynda mánaðarins en hann snýst að þessu sinni um að finna snjókarlinn sem hefur verið komið fyrir einhvers staðar í Bíó- eða DVD hluta blaðsins.
Í vinning að þessu sinni eru 5 x 2 bíómiðar.
Frestur til þátttöku er til og með 22.janúar. Dregið verður af handahófi úr réttum lausnum þann 23. janúar og verða bíómiðarnir póstlagðir til vinningshafa. Nöfn vinningshafa verður síðan að finna í næsta tölublaði af Myndum mánaðarins og á Facebook-síðu blaðsins: facebook.com/myndirmanadarins.
Gangi þér vel!

