Það eru án efa margar leikkonur sem væru til í að hreppa hlutverk í næstu Superman mynd, sem Zack Snyder mun leikstýra. En samkvæmt tímaritinu Variety eru þrjár leikkonur á lokasprettinum og berjast nú hart til að fá hlutverkið.
Leikkonurnar Diane Kruger, Rosamund Pike og Alice Eve eru nú allar jafn líklegar til sigurs, en það sem hefur komið mörgum á óvart er að hlutverkið sem þær keppast um er ekki Lois Lane.
Eins og margir vita er Lois Lane ástkona Ofurmannsins en samkvæmt Variety mun Snyder og Christopher Nolan hafa ákveðið að velja aðra konu úr myndasögunum fyrir myndina. Eins og við greindum frá fyrir stuttu var hinn breski Henry Cavill ráðinn í hlutverk Superman, og munu tökur hefjast í sumar.
UPPFÆRT: Samkvæmt vefsíðunni Latino Review er hlutverkið sem leikkonurnar þrjár berjast um eitt af aðalþorpurunum í myndinni. Helstu kenningarnar um hver yrði skúrkurinn í myndinni hljóðuðu þannig að General Zod, sem margir þekkja úr Superman 2, myndi gera Ofurmanninum lífið leitt. Ef það stemmir er líklegt að Pike, Kruger eða Eve muni leika Ursa, hjálparhellur Zods.
– Bjarki Dagur