Kvikmyndagerðarmaðurinn Roger Michell er látinn 65 ára að aldri. Talsmaður leikstjórans greindi frá andláti hans í dag en Michell lést í gær, miðvikudag. Ekki hefur þó verið greint frá dánarorsök.
Á löngum ferli kom Michell víða við og vann með fjölmörgum stórleikurum, en hans þekktasta kvikmynd er án efa Notting Hill með Juliu Roberts og Hugh Grant.
Umrædd gamanmynd er ein söluhæsta rómantíska gamanmynd sem framleidd hefur verið í Bretlandi, en auk hennar leikstýrði Michell kvikmyndunum Changing Lanes, Venus, Blackbird, Hyde Park on the Hudson og Morning Glory með þeim Harrison Ford, Diane Keaton og Rachel McAdams í aðalhlutverki.
Michell fæddist í Suður Afríku en faðir hans var breskur. Fjölskyldan fluttist seinna til Bretlands. Hann menntaði sig í Cambrigde háskóla og var aðstoðarleikstjóri í Royal Court Theather um tíma.
Leikstjórinn lætur eftir sig fjögur börn, Harry, Rosie, Maggie og Sparrow sem hann átti með tveimur fyrrverandi eiginkonum sínum Kate Buffery og Önnu Maxwell Martin.