Hal Needham, áhættuleikari sem gerðist leikstjóri spennumynda, eins og Smokey and the Bandit og Cannonball Run, sem báðar voru með besta vini hans Burt Reynolds í aðalhlutverkinu, lést í Los Angeles á föstudaginn. Hann var 82 ára að aldri.
Í ræðu sem hann hélt við afhendingu Óskarsverðlaunanna árið 2012 sagðist hann hafa brotið 56 bein í skrokknum, þar á með bakið á sér tvisvar sinnum. Hann skaddaðist á lunga, fór úr axlarlið og missti nokkrar tennur. Hann fann upp þónokkuð af nýjum aðferðum í áhættuleik og sömuleiðis þróaði hann tæki og tól til notkunar í áhættuatriðum. Eitt af þeim var loftpúði til að taka af manni fall, en hann fékk hugmyndina þegar hann var að horfa á stangarstökk í sjónvarpinu.
„Hal Needham var frábær áhættuatriða-stjórnandi, leikstjóri og fyrirmynd,“ sagði Arnold Schwarzenegger á Twitter. „Ég er enn þakklátur honum fyrir að hann tók áhættu með að fá mig í myndina The Villain,“ sagði Schwarzenegger um myndina frá árinu 1979 sem Needham leikstýrði.
Needham vann vísinda- og verkfræði Óskar árið 1986 fyrir þróun á myndavélabíl.
Hann gaf út æviminningar sínar árið 2011, Stuntman.