Jennifer Jason Leigh hefur verið ráðin í aðalkvenhlutverkið í nýjustu mynd Quentin Tarantino, The Hateful Eight.
Leigh mun leika Daisy Domergue sem er eftirlýst fyrir morð og til stendur að hengja hana. Margar aðrar leikkonur höfðu verið orðaðar við hlutverkið, þar á meðal Michelle Williams, Hilary Swank, Robin Wright og Demi Moore.
Leigh vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir leik sinn í Last Exit To Brooklyn og Single White Female.
Samuel L. Jackson, Kurt Russell, Tim Roth, Michael Madsen, Walton Goggins og Bruce Dern leika einnig í myndinni.
The Hateful Eight gerist í Wyoming eftir borgarastríðið og er hún væntanleg í bíó á næsta ári.