Ernie Hudson, einn af aðalleikurunum í upprunalegu Ghostbusters myndunum, mun koma fram í nýju Ghostbusters myndinni, að því er Variety greinir frá.
Vefsíðan segir að enn sé óljóst hvort Hudson leiki sama hlutverk og í upprunalegu myndunum, hlutverk Winston Zeddemore.
Í myndinni hittir hann tvo félaga sína úr gömlu myndunum, þá Bill Murray og Dan Aykroyd, sem léku aðalhlutverk í myndunum ásamt Harold Ramis.
Nýju myndinni er leikstýrt af Paul Feig og er með þeim Kristen Wiig, Melissa McCarthy, Leslie Jones, Kate McKinnon og Chris Hemsworth í aðalhlutverkum.
Myndin kemur í bíó 22. júlí 2016.