Náðu í appið
Öllum leyfð

Jóhanna: Síðasta orrustan 2015

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 15. október 2015

90 MÍNÍslenska

Í myndinni er fylgst með störfum Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrum forsætisráðherra og því sem gerist bak við tjöldin í Stjórnarráðinu. Kastljósinu er einkum beint að baráttu hennar og annarra fyrir því að fá Alþingi til að samþykkja nýja stjórnarskrá Íslands. Myndin hefst á landsfundi Samfylkingarinnar þegar Árni Páll Árnason tekur við af Jóhönnu... Lesa meira

Í myndinni er fylgst með störfum Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrum forsætisráðherra og því sem gerist bak við tjöldin í Stjórnarráðinu. Kastljósinu er einkum beint að baráttu hennar og annarra fyrir því að fá Alþingi til að samþykkja nýja stjórnarskrá Íslands. Myndin hefst á landsfundi Samfylkingarinnar þegar Árni Páll Árnason tekur við af Jóhönnu sem formaður flokksins. Árn Páll boðar ný vinnubrögð og lætur af þeirri stefnu Jóhönnu að reyna að knýja stjórnarskrána í gegnum þingið og vill þess í stað skapa þverpólitíska samstöðu um að fresta hluta hennar til næsta kjörtímabils. Þessi stefna veldur miklum ágreiningi við þá sem vilja klára málið, jafnt innan Samfylkingarinnar og utan. Í kjölfarið verða mikil átök á þingi og í bakherbergjum um stjórnarskrármálið - og engin leið að vita hvaða endi það muni fá.... minna

Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn