The Bye Bye Man
2017
Frumsýnd: 3. febrúar 2017
Don´t Think It. Don´t Say It.
96 MÍNEnska
18% Critics
22% Audience
37
/100 Árið 1960 framdi ungur maður fjöldamorð í blokkinni þar sem
hann bjó og eftir að hafa verið handsamaður bar hann því við
að „Bye Bye-maðurinn“ hefði sagt honum að fremja morðin.
Löngu síðar gera fjögur ungmenni tilraun til að ná sambandi
við framliðið fólk og vita ekki að þar með kalla þau yfir sig
endurkomu Bye Bye-mannsins með hörmulegum... Lesa meira
Árið 1960 framdi ungur maður fjöldamorð í blokkinni þar sem
hann bjó og eftir að hafa verið handsamaður bar hann því við
að „Bye Bye-maðurinn“ hefði sagt honum að fremja morðin.
Löngu síðar gera fjögur ungmenni tilraun til að ná sambandi
við framliðið fólk og vita ekki að þar með kalla þau yfir sig
endurkomu Bye Bye-mannsins með hörmulegum afleiðingum.
„Vondi kallinn“, eða „boogie man“ eins og hann er nefndur á ensku,
hefur í gegnum árin tekið á sig ýmsar myndir. Bye Bye-maðurinn er
ein þeirra en í þeirri útgáfu drepur hann ekki sjálfur heldur fær
fórnarlömb sín til að gera það með því að fylla þau af ranghugmyndum
og ofsjónum. Að þessu komast vinirnir John, Sasha, Kim
og Elliott illu heilli kvöld eitt þegar þau eru að gera tilraunir með
andaglas og bjóða fyrir slysni þessari óvætt að kíkja í heimsókn ...... minna