The People vs. Fritz Bauer (2016)
Der Staat gegen Fritz Bauer
"Based on the true story of the hunt for Adolf Eichmann."
Lögmaðurinn Fritz Bauer var mikill andstæðingur Hitlers og stefnu hans og neyddist til að flytja til Danmerkur árið 1935 og síðan til Svíþjóðar árið 1943.
Bönnuð innan 12 ára
FordómarSöguþráður
Lögmaðurinn Fritz Bauer var mikill andstæðingur Hitlers og stefnu hans og neyddist til að flytja til Danmerkur árið 1935 og síðan til Svíþjóðar árið 1943. Eftir stríð flutti hann aftur til Þýskalands og hóf um leið þrotlausa leit að nasistum sem voru eftirlýstir vegna stríðsglæpa og höfðu flúið land. Í myndinni er sögð hin sanna saga af því þegar Fritz komst á snoðir um dvalarstað Adolfs Eichmann og lagði á sig þá þrautargöngu að finna hann og koma honum í hendur Ísraelsmanna. Sú aðgerð varð hættulegri en hann sá fyrir enda vildu ekki allir landar hans finna Eichmann ...
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir
Myndir
Plaköt
Framleiðendur



Verðlaun
Der Staat gegen Fritz Bauer var tilnefnd til níu Lola-verðlauna (þýsku kvikmyndaverðlaunin) og hlaut þau fyrir bestu leikstjórn, besta handrit, besta leik í aðalhlutverki karla, bestu sviðshönnun, bestu búninga og sem besta mynd ársins










