Náðu í appið
Hellboy

Hellboy (2019)

Hellboy: Rise of the Blood Queen

"Demons Have Demons Too."

2 klst2019

Anung Un Rama, öðru nafni Hellboy, er að hálfu leyti djöfull og að hálfu leyti mennskur, alinn upp af prófessor Trevor Bruttenholm og starfar fyrir B.P.R.D.

Rotten Tomatoes17%
Metacritic31
Deila:
Hellboy - Stikla
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiHræðslaHræðslaBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Anung Un Rama, öðru nafni Hellboy, er að hálfu leyti djöfull og að hálfu leyti mennskur, alinn upp af prófessor Trevor Bruttenholm og starfar fyrir B.P.R.D. (Bureau for Paranormal Research and Defense) að því að uppræta ýmis ill öfl sem ógna mannkyninu. Þótt hann líti út eins og djöfull og sé með horn hala og klaufir, er hjarta hans mennskt og slær fyrir réttlæti. Hellboy er einnig rammur að afli, ónæmur fyrir sjúkdómum og gæddur yfirnáttúrulegum hæfileikum til að lækna og græða líkama sinn af öllum sárum sem hann hlýtur, bæði fljótt og vel. Hægri hönd hans er úr grjóti og þeir eru ekki margir sem þurfa meira en eitt högg frá henni til að hverfa endanlega yfir til forfeðra sinna. Sagan hefst reyndar löngu áður en Hellboy fæðist, þ.e. þegar Artúr konungur stöðvar blóðdrottninguna Nimue og hennar illu áform um að leggja banvæn álög á þegna hans. En þótt Artúr hafi síðan bútað Nimue í sundur með sverðinu Excalibur og falið líkamsleifar hennar víða um England hefur sú hætta ávallt verið fyrir hendi að einhver óvætturinn nái að vekja hana til lífsins á ný. Sú stund er einmitt runnin upp núna og þar með fær Hellboy nóg að gera!

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Campbell Grobman FilmsUS
Dark Horse EntertainmentUS
Millennium MediaUS
Boyana Film StudiosBG
Lawrence Gordon ProductionsUS
Lloyd Levin ProductionsUS