Náðu í appið
Robin Hood

Robin Hood (2018)

"The Legend You Know. The Story You Don't."

1 klst 56 mín2018

Þjóðsögunni þekktu um alþýðuhetjuna Hróa hött sem ásamt félögum sínum í Skírisskógi rændi þá ríku til að gefa þeim fátæku eru gerð ný og uppfærð...

Rotten Tomatoes14%
Metacritic32
Deila:
Robin Hood - Stikla
12 áraBönnuð innan 12 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Þjóðsögunni þekktu um alþýðuhetjuna Hróa hött sem ásamt félögum sínum í Skírisskógi rændi þá ríku til að gefa þeim fátæku eru gerð ný og uppfærð skil í þessari stórskemmtilegu og fjörugu mynd þar sem bardaga- og áhættuatriðum er gert hátt undir höfði. Auk þess má fullyrða að Hrói sjálfur hefur aldrei verið jafn fimur með bogann og hann er í þessari mynd. Sem fyrr snýst barátta Hróa hattar og manna hans um að varna því að Jón fógeti í Nottingham nái að sölsa undir sig völd og peninga sem tilheyra ekki honum. Sagan hefst þó nokkrum árum fyrr þegar Hrói var lávarður í Nottingham og átti í ástarsambandi við Marion heitmey sína og frænku hins gjörspillta Jóns fógeta. Þegar Jón stíar þeim í sundur með því að senda Hróa í krossferð til Austurlanda tekst honum um leið að sölsa undir sig landareign hans. Fimm árum síðar þegar Hrói snýr aftur úr krossferðinni og kemst að því að hann er talinn hafa verið drepinn í orrustu ákveður hann að breyta sér í hinn hettuklædda Hróa hött, koma fram hefndum á Jóni og hans mönnum og endurheimta um leið ástir Marion ...

Aðalleikarar

Vissir þú?

Taron Egerton lærði bogatæknina sem hann beitir í myndinni hjá danska bogasnillingnum Lars Andersen, en myndbönd þar sem Lars sýnir leikni sína með bogann og örvarnar hafa notið mikilla vinsælda á YouTube. Fyrir utan að vera hittinn er hann svo snöggur að skjóta að undrum sætir og hefur hraða hans verið líkt við hrað- ann sem Legolas réð yfir í LOTR- og Hobbit-myndunum.

Höfundar og leikstjórar

Otto Bathurst
Otto BathurstLeikstjórif. -0001
David James Kelly
David James KellyHandritshöfundurf. -0001
Ben Chandler
Ben ChandlerHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

Appian WayUS
Safehouse PicturesUS
Summit EntertainmentUS
Thunder RoadUS
TIK FilmsHK
EMG ManagementGB