Náðu í appið
Bönnuð innan 16 áraÍ myndinni er ljótt orðbragð

Papillon 2018

The Greatest Escape Adventure Ever Told

133 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 52% Critics
The Movies database einkunn 51
/100

Sönn saga Frakkans Henris Charrière (kallaður Papillon, eða „fiðrildið“ vegna fiðrildahúðflúrs á bringu hans) sem var árið 1931 dæmdur í ævilangt fangelsi og tíu ára þrælkunarvinnu í St-Laurent-du-Maroni-fangelsinu í nýlendu Frakka í Gíneu fyrir morð sem hann neitaði ætíð að hafa framið. Það má segja að mögnuð saga Henris Charrière kristallist... Lesa meira

Sönn saga Frakkans Henris Charrière (kallaður Papillon, eða „fiðrildið“ vegna fiðrildahúðflúrs á bringu hans) sem var árið 1931 dæmdur í ævilangt fangelsi og tíu ára þrælkunarvinnu í St-Laurent-du-Maroni-fangelsinu í nýlendu Frakka í Gíneu fyrir morð sem hann neitaði ætíð að hafa framið. Það má segja að mögnuð saga Henris Charrière kristallist í tvennu, annars vegar vináttu hans og annars fanga, Louis Dega, sem var dæmdur í fangelsi á sama tíma fyrir skjalafals og hins vegar í flóttatilraunum Henris sem var frá upphafi fangavistarinnar staðráðinn í að öðlast frelsi sitt á ný. Þær tilraunir áttu eftir að kosta hann áralanga einangrunarvist og síðan flutning til svonefndrar Djöflaeyju úti fyrir strönd Frönsku Gíneu, en frá henni átti enginn fangi að geta sloppið ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn