Náðu í appið
The Loner

The Loner (2016)

The Persian Connection

"Even Paradise Does Not Last Forever."

1 klst 43 mín2016

Eftir að hafa verið ranglega sakaður um að stela eiturlyfjum frá fyrrverandi vinnuveitanda sínum þarf hinn íranski Behrouz að sanna sakleysi sitt með því að...

Rotten Tomatoes57%
Metacritic49
Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiVímuefniVímuefniHræðslaHræðsla

Söguþráður

Eftir að hafa verið ranglega sakaður um að stela eiturlyfjum frá fyrrverandi vinnuveitanda sínum þarf hinn íranski Behrouz að sanna sakleysi sitt með því að hafa uppi á hinum raunverulegu ræningjum og endurheimta fenginn. The Persian Connection gerist í undirheimum Los Angeles þar sem íranskar og rússneskar glæpamafíur berjast um völdin. Við komumst samt fyrst að því að aðalpersónan, Behrouz, hafði sem ungur drengur verið sendur í stríðið gegn Írökum þar sem honum var naumlega bjargað frá dauða af írönskum glæpaforingja. Hann var síðan sendur til Los Angeles þar sem honum var gert að vinna fyrir írönsku mafíuna, m.a. við „aftökur“ á óvinum hennar. Honum hafði samt tekist um síðir að losna undan áhrifum mafíunnar og þegar myndin byrjar er hann að reyna að koma undir sig fótunum í heiðarlegri vinnu þegar honum er skyndilega kippt aftur til fortíðar sinnar og hótað öllu illu finni hann ekki hin stolnu eiturlyf. Inn í málin blandast svo unnusta Behrouz og ungur drengur sem gefa honum meiri og betri ástæðu en nokkurn tíma fyrr til að losna við óværu fortíðar sinnar af bakinu í eitt skipti fyrir öll ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Daniel Grove
Daniel GroveLeikstjórif. -0001
Reza Sixo Safai
Reza Sixo SafaiHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

Black Light DistrictUS