Náðu í appið
Grace Jones: Bloodlight and Bami

Grace Jones: Bloodlight and Bami (2017)

"An electrifying journey through the performance, private and public worlds of pop cultural icon Grace Jones."

1 klst 55 mín2017

Kraft- og yfirgripsmikil heimildarmynd um lífsstarf Grace Jones sem varð ein af ofurfyrirsætum áttunda og níunda áratugar síðustu aldar og sló um leið í gegn...

Rotten Tomatoes87%
Metacritic75
Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð
Ástæða:BlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

Kraft- og yfirgripsmikil heimildarmynd um lífsstarf Grace Jones sem varð ein af ofurfyrirsætum áttunda og níunda áratugar síðustu aldar og sló um leið í gegn sem tónlistarkona auk þess sem hún lék í nokkrum bíómyndum. Grace Jones fæddist á Jamaica í maí 1948 en fluttist 13 ára gömul til New York. Þar leið ekki á löngu uns hún var komin á fyrirsætusamning sem leiddi til enn stærri samninga við tískufyrirtæki eins og Yves St. Laurent og Kenzo. Árið 1977 skrifaði hún síðan undir plötusamning við Island Records og má segja að hún hafi átt sviðið á uppgangsárum Stúdíos 54 í New York sem var nokkurs konar vagga diskótónlistarinnar. Í myndinni er farið yfir feril hennar en um leið kynnumst við persónunni á bak við sviðsútlitið, móðurinni og ömmunni sem hefur ætíð ræktað sambandið við heimaland sitt þrátt fyrir minningar um mjög erfiða barnæsku ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Framleiðendur

Keeper PicturesIE