Náðu í appið
Lýðurinn og konungur hans

Lýðurinn og konungur hans (2018)

Un peuple et son roi

2 klst 1 mín2018

One Nation, One King (Un peuple et son roi) er sögulegt skáldverk sem gerist í Frönsku byltingunni á árunum 1789–1793.

Deila:
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlífHræðslaHræðslaFordómarFordómarBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Leiga
Stöð 2Síminn

Söguþráður

One Nation, One King (Un peuple et son roi) er sögulegt skáldverk sem gerist í Frönsku byltingunni á árunum 1789–1793. Örlög almúgakarla og kvenna og sögufrægra persóna eins og t.d. Robespierres, Marats, Desmoulins og Dantons fléttast saman í aðdraganda byltingarinnar en þungamiðja sögunnar eru afdrif konungsins, Lúðvíks 16., og stofnun franska lýðveldisins. Hér er fjallað um aðdraganda og fyrstu ár Frönsku byltingarinnar frá mjög víðu sjónarhorni þar sem áhorfendur kynnast ekki bara fólki og þátttakendum af öllum stigum og stéttum þjóðfélagsins heldur og kjörum þeirra og daglegu lífi mitt í allri ringulreiðinni sem fylgdi þessari sögulegu byltingu – sem gjörbreytti síðan allri Evrópu.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Pierre Schoeller
Pierre SchoellerLeikstjórif. -0001

Framleiðendur

StudioCanalFR
Archipel 33>35FR

Verðlaun

🏆

Myndin hreppti verðlaunin á pólitísku kvikmyndahátíðinni í Porto Vecchio árið 2017. Tilnefnd til tvennra César-verðlauna, fyrir búningahönnun og sviðsetningu