Náðu í appið
Adventures of Dally and Spanky

Adventures of Dally and Spanky (2019)

"Sum ævintýri eru sönn"

1 klst 25 mín2019

Sönn saga hálfsystranna Addyar og Ellu sem eignuðust smáhestinn Spanky og Jack Russell Terrier-hvolpinn Dally á sama tíma og uppgötvuðu að á milli dýranna myndaðist...

Deila:
Öllum leyfð Öllum leyfð

Hvar má horfa

Söguþráður

Sönn saga hálfsystranna Addyar og Ellu sem eignuðust smáhestinn Spanky og Jack Russell Terrier-hvolpinn Dally á sama tíma og uppgötvuðu að á milli dýranna myndaðist eins sönn og kær vinátta og hún getur orðið. Þeir Dally og Spanky eru þekktir í Bandaríkjunum, svo og hálfsysturnar Addy og Ella, eigendur þeirra og þjálfarar, enda hafa þær ferðast um landið á undanförnum árum og gefið fólki kost á að sjá vinina tvo leika listir sínar auk þess að koma fram í mörgum sjónvarpsþáttum. Í þessari mynd hverfum við til upphafsins og fáum að sjá hvernig allt byrjaði þegar faðir Addyar gaf henni smáhestinn Spanky rétt áður en hann lét lífið í bílslysi. Þótt Addy vildi eiga Spanky áfram kom fljótlega í ljós að kostnaðurinn við það var of mikill og því kom það til álita að selja hann. En þegar hún og systir hennar Ella, sem átti hvolpinn Dally, uppgötvuðu vináttubönd þessara tveggja dýra ákváðu þær að þjálfa þau upp og skrá þau síðan í hæfileikakeppni. Þar með hófst ævintýrið sem enn sér ekki fyrir endann á ...

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Camille Stochitch
Camille StochitchLeikstjórif. -0001
Tyler W. Konney
Tyler W. KonneyHandritshöfundurf. -0001

Framleiðendur

Taylor & DodgeUS