Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Alveg hreynt yndisleg mynd og kemt hún mjög ofarlega yfir bestu myndir sem ég hef séð.
Roberto Benigni er alveg frábær í þessari mynd, þó svo margir fynnist hann vera tilgerðalegur og ofleika hlutverk sitt, þá eru þeir einfaldlega ekki að sjá að svona á leikurinn að vera, leikurinn hjá Roberto Benigni er það sem gerir myndina svo mikla snilld.
Þegar ég fór á myndina var ég ekki viss við hverju ég ætti að búast við en vægast sagt þá varð ég fyrir miklum vonbrigðum. Leikur leikaranna var ýktur og ósannfærandi, kringustæður voru að einhverju leiti óraunverulegar. En hún átti samt sína góðu punkta. Seinni helmingurinn af myndinni var þreytandi. Allatf að hlusta á hann útskýra fyrir syni sínum keppnina. Allavegna þá leiddist mér mikið og var fegin að sleppa þegar myndinni lauk. Ég get ekki sagt að leikarar eða myndin eigi skilið óskarinn.
Yndisleg mynd. Bæði fyndin og sorgleg á snilldarlegan hátt. Leikurinn fínn, Roberto Benigni ef til vill örlítið of trúðslegur, en það skemmdi alls ekki. Á öll sín Óskarsverðlaun skilin.
Þetta er frábær mynd allveg út í gegn. Hún fjallar um gyðing á tímum nasista sem nær að fela son syn í nasistabúðum. Faðirinn kemur því fyrir að sonurinn getur litið til baka til æskuára sinna með góðum minningum, jafnvel þótt að hann hafi lifað við hinar bagalegustu aðstæður sem komið hafa upp í mannkyninu til þessa. Þetta er frábær mynd og ef þú vilt sjá mynd sem skilur eitthvað eftir er þessi allveg tilvalin. Ég hika ekki við að gefa henni 4 stjörnur.
Guido er fátækur ungur maður sem hefur þann hæfileika að geta gert alla káta í kringum sig. Hann hittir draumadísina sína oft og mörgum sinnum í gegnum eintómar tilviljanir en hún á að giftast óþolandi leiðindaskarfi. Honum tekst að vinna hjarta hennar og þau strjúka á brott og giftast. Þónokkrum árum seinna er sonur þeirra orðinn svona 6-7 ára. En þar sem Guido er gyðingur er hann sendur ásamt syni sínum í útrýmingarbúðir nasista og konan hans einnig. Honum tekst að telja drengnum trú um að þetta sé allt saman leikur og ef þeir fái nógu mörg stig með því að taka þátt í leiknum fái þeir alvöru skriðdreka að launum. Honum tekst þetta í sex ár allt þar til stríðinu slotar en þá verður hann að fela son sinn svo hann verði ekki líflátinn af nasistum á meðan hann heldur áfram að segja honum að þetta sé leikur. Þessi litla perla er ein besta mynd sem hefur verið gerð á árinu. Roberto Benigni sannar hér að ekki aðeins er hann frábær gamanleikari heldur frábær leikari og leikstjóri yfir höfuð. Hann er allt í öllu í þessari mynd. Margar óborganlegar senur eru í myndinni, ekki síst þar sem hann þykist þýða það sem fangavörðurinn er að segja við fangana. Seinni hlutinn á myndinni er átakanlegri en þar skín fyndnin einnig í gegn og gerir hann ljúfsáran. Það eru fáir sem myndu leyfa sér að gera út á fyndni á þessum hörmungartíma en Benigni gerir það svo vel að það verður að kallast kvikmyndaafrek. Honum bókstaflega tekst að sýna hið fyndna í öllum hryllingnum. Ég vona að hann taki heim með sér Óskarstyttur fyrir eitthvað. Hreint út sagt stórkostleg mynd.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Vincenzo Cerami, Roberto Benigni
Kostaði
$20.000.000
Tekjur
$230.098.753
Vefsíða:
www.miramax1998.com/lifeisbeautiful/life_picture.html
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
12. mars 1999
Útgefin:
1. maí 2015
VOD:
1. maí 2015
VHS:
9. nóvember 1999